07júní

Afsakið hlé..

..já ég er ekki sú duglegasta í bransanum en ég vona að ég fái ekki sömu meðferð og Gaupi vill að Jolli fái...þetta er nú meira ruglið..eins og það geri landsliðinu einhvern greiða með að skipta um þjálfara á hálfs árs fresti eða eitthvað álíka..þá er alltaf verið að byrja á núllinu og enginn árangur næst..ég held með Jolla!

En lífið gengur sinn vanagang hjá mér..sofa vinna éta sofa...jú og ein fótboltaæfing..ég er ekki heldur sú duglegasta í þeim bransanum...ég held ég sé að fá þá útkomu að ég sé LÖT..já kannski bara..ég hef nógan tíma til að vera dugleg..ég verð dugleg í vetur.Skömmustulegur
.Ég kíkti samt á ball í mekka skemmtanahalds í skagafirði..eða í íþróttahúsinu..það var alveg mjög skemmtilegt ball..fullt af skemmtilegu fólki og e-ð af aðeins minna skemmtilegu fólki og sumir fengu nú reyndar að finna aðeins fyrir klónum á mér..en bara gaman af því! Hlæjandi

16.júni um næstu helgi og þá verður kátt í höllinni..íþróttahöllinni..hahahaha góður þessi Vala..komin með brandara...á einmitt að sjá um skemmtiatriði fyrir minn hóp..ásamt fleirum..og nú eruð þið komin með forsmekkinn af því hvernig það verður..Svalur

Já ég held ég ætti bara að hætta þessu bulli áður en ég drep ykkur úr hlátri af bröndurunum mínum..en ég hvet alla að mæta á þessa skemmtun..þetta verður eflaust dúndur fjör..og enn betra með Geira í farabroddi!!

Biðaðheilsykkur!
07. júní 2007 klukkan 23:15
Vala Hrönn Margeirsdóttir
5 athugasemdir
22maí

jaaa..guten Tag!

..heh! obbobobb...ég hefði átt að vera aðeins meira að monta mig yfir því hvað ég væri dugleg að blogga..ég lagðist í smá dvala en gerði margt í dvalanum!

Ég byrjaði í sparisjóðnum og er búin að vera að vinna þar núna í rúmar tvær vikur..það er alveg sérdeilis fínt. Kunnáttan er orðin ágæt og ég er farin að spjara mig ágætlega í afgreiðslunni og á símanum...það sem ég gerði aðalega fyrstu dagana var að senda símann á hina því ég vissi ekkert hvað fólkið var að tala um..lána,gengis, fasteigna hahvað?!?! Já ég fékk líka að tæta blöð og brjóta saman blöð í umslög..þau eru örugglega mjög fegin að þurfa ekki að gera það lengur..því nú er ég orðin yfirtætari og yfirpóstari! takk fyrir takk!

Já ég fór suður með henni Ingu minni um júróhelgina..Ég get ekki annað sagt en að sú helgi var algjör snilld! Við fórum að versla og duttum í það..já heldur betur! Ég náði að kaupa útskriftarkjólinn þannig þar var þungu fargi af mér létt.
Við fengum að gista hjá sólborgu sem var voða fallegt af henni og skemmtum við okkur konunglega..Okkur var boðið í grill til Lollu mömmu margrétar..mmm!! og skunduðum svo í party á hraunteiginn hjá strákunum. Palli var næstur á dagskrá og fórum við á nasa og var allt troðið þar..af skagfirðingum! En palli stóð sig vel eins og alltaf..þetta var dúndur stuð! E-ð voru stelpurnar þunnar daginn eftir..en ég slapp alveg sem betur fer!

Já ég ákvað að fara aftur suður núna um síðustu helgi, Margrét Guðný var að útskrifast og ég ákvað að skella mér, fékk far með honum Alberti...takk fyrir það!
Maður var aðeins rólegri þessa helgina..fékk mér nú samt aðeins..ég fékk áfengan fordrykk í veislunni hjá margréti en vissi samt ekki af því fyrr en eftir á..haha! Stjörnustelpurnar máttu ekki drekka þannig ég var ein að drekka þarna án þess að ég vissi það..en svo fékk ég bjórdós og þá fór það ekkert milli mála að ég væri að setja áfengi inn fyrir mína varir!Þó maður fái sér! Svalur
 Við inga og helga fórum svo heim til thelmu og hittum nokkrar píur sem voru á leiðinni á djammið og sumar voru aðeins hressari en aðrar..en það varð lítið úr djammi hjá mér...ég kíkti bara rúnt með ingu og svo kom alli með í smá stund og svo fór maður bara heim að sofa..

Ég og helga keyrðum svo saman heim á sunnudaginn eftir leikinn hjá strákunum..

En já svo er það bara útksriftin á næsta leiti..eða bara á föstudaginn og svo ætla ég að vera með smá veislu fyrir fjölskylduna á laugardaginn!
Þannig næsta helgi er alveg uppbókuð hjá mér! Allir á djammið!!

Segi þetta bara sehr gut í bili!

22. maí 2007 klukkan 23:32
Vala Hrönn Margeirsdóttir
6 athugasemdir
06maí

Sæluvikan...

...var tekin í nefið...
Hún byrjaði í forsælunni eða á vormóti Molduxa, þar var ég fjárhirðir eða var að heimta inn mótsgjöld..svaka stuð! Um kvöldið var mér, ingu og sólborgu boðið á molduxaskemmtunina, þar fengum við hlaðborð, skemmtiatriði og ball. Við fengum að sjá pabba dansa ballet í síðbrók, mjög falleg sjón! haha! Hann gerði nú meira en að dansa ballet, hann bauð stúlkunum upp á hvítvín og voru þær mjög sáttar með það..ég fékk ekkert svoleiðis því ég var að fara vinna í útideild! Enda fékk ég að finna fyrir því.."er kókið kalt? viltu meira kooók?" já pabbi var hress. Svo fann hann uppá því að þegar hann kallaði "Hey pæks! "(ekki veit ég hvað það þíðir en...) þá áttum við að skála...þetta fannst honum alveg magnað og gerði þetta svona 10 sinnum í röð og svo alltaf inn á milli hehehe! Stelpurnar ætla núna alltaf að hringja í pabba ef ég get ekki djammað með þeim..maður kvöldsinsHlæjandi
Á mánudaginn skellti ég mér á kirkjukvöld með ingu og önnu rögnu..það var voða fínt..hefði samt viljað að Lay low hefði tekið fleiri lög...ég get alltaf fengið að heyra í þessum kirkjukór...þótt hann hafi alveg staðið sig ágætlega!
Síðasta miðvikudag talaði ég þýsku allan daginn þar sem ég tók 2 þýskupróf og náði þar að byrja og klára prófin á sama deginum...verí næs! ég er búin að fá að vita það að ég náði þeim báðum þannig ég er að fara útskrifast þann 25.mai..jibbíjejj!
Á fimmtudaginn var misheppnuð tilraun okkar ingu að fara á djammið..magni átti að vera að spila á mælifell en hann mætti ekki!?!?! Það var sérdeilis magnað hjá honum..þá var náttúrlega enginn í bænum og við fórum bara heim. Já ætli ég hafi ekki kíkt á sýninguna í safnaðarheimilinu líka...hún var spes...en samt flott líka!
Föstudagurinn var aðal dagurinn...dægurlagaskemmtunin! Það var brjálað fjör á henni..geðveikt skemmtileg lög og góður söngur! Ekki skemmdi fyrir að geiri og bó halldórs voru báðir á svæðinu og sungu fyrir mig! Svalur Ballið var mjög skemmtilegt og mikil stemmning í öllu liðinu. Ég fór náttúrlega baksviðs með söndru frænku til að fá eiginhandaráritun frá bó...auðvitað fenguð við hana..og ritaði gamli á brjóstið á okkur haha! Svo fékk Gunni trommari að árita hitt! Þegar ég sýndi pabba þetta fékk ég þvílíkt augnaráð og svo skipaði hann mér að fara ekki í bað!! haha góður! Þetta kvöld var algjör snilld! hefði ekki viljað sleppa þessu! 
Ég endaði svo sæluvikuna á leikritinu sem var snilld..og svo rúnti um kvöldið..maður nennti ekki á ball..maður er orðinn eitthvað svo gamall..
Svo er það bara fyrsti dagurinn í sparisjóðnum á morgun..það verður örugglega stuð
 
Ég ætla að fara sofa í hausinn á mér!
 
06. maí 2007 klukkan 23:45
Vala Hrönn Margeirsdóttir
8 athugasemdir
28apríl

Hvítvín!!!

...vá hvað ég er dugleg að blogga...
En ég ætlaði að vera svo slök núna um helgina..en skjótt skipast veður í lofti..Sólborg hringdi og bað mig um að sækja sig í varmó..ekkert mál...við fórum svo heim til mín í betrti gallann og útideildin sótti okkur svo við skunduðum til snorra og drukkum hvítvín..ekki alveg mitt uppáhald, en ég lét mig hafa það...svaka fjör á mófó-sport..lét árna þór hafa það...já þetta er allt sem ég vildi sagt hafa...
gút bæjj
28. apríl 2007 klukkan 04:18
Vala Hrönn Margeirsdóttir
6 athugasemdir
27apríl

Dimmitering

Vá..er alveg búin á því! Dimmiteringin var algjör snilld í alla staði en ég er ekki viss um að ég geti gert þetta aftur! haha....Ég, Inga og Anna byrjuðum að gera okkur til heima hjá mér og skruppum svo í heimsókn til Þuríðar í nýju íbúðina..voða kósý hjá þeim hjúum! En um 12 fórum við í tjarnabæ þar sem var fullt af liði mætt í sjóaragöllunum..algjör snilld  Um 3 leytið voru margir orðnir frekar þreittir en svo voru allir orðnir mjög hressir um hálf fimm! Árni Þór var að meika það á gítarnum og var spilað og sungið alla nóttina! Við fórum af stað að vekja kennarana um 6 leitið á traktornum...aldrei hefði ég trúað því að við mundum komast öll á vagninn en þetta small svona vel! Mesta fjörið var í matsalnum verð ég að segja...þá voru allir í þvílíkum svefngalsa og allt var svo geggjað skemmtilegt og fyndið...mmm grillaðar pylsur kl 8 morgun..eða ekki bara!  En appelsínurnar voru góðar haha! Við tók söngur á skólaganginum og inná kennarastofu..svo var maður orðinn frekar þreittur um 10 leitið og ákvað að fara heim að sofa!
En já mikið fjör og mikið gaman..er enn frekar eftir mig..þannig ég segi þetta bara sehr gut!!

27. apríl 2007 klukkan 15:34
Vala Hrönn Margeirsdóttir
4 athugasemdir
25apríl

Allt að gerast!!

Já ég ákvað að byrja að blogga..eða allavegana að reyna það! Ég veit ekki hvort ég eigi eftir að standast væntingar en þið verðið bara að gefa mér séns. 
Ég á eftir að vera rosalega dugleg að setja inn myndir af öllum viðburðum..en það verður ekki fyrr en ég eignast myndavél sem ég veit ekki alveg hvenær verður..haha
Það sem er á döfinni núna er dimmitering sem er í kvöld og alla nótt! :) Ég er búin að hlakka mikið og er ég viss um að þetta verður heljarfjör, frábær hópur sem er að fara dimmitera með mér. Þemað er sjóaragalli og ég er búin að redda honum nánast.
Eftir helgi byrja prófin eða á miðvikudaginn reyndar..ég er svo heppin að vera bara í tveimur prófum og klára þau fyrsta prófdaginn..sweet! Svo byrjar vinnan 7.mai í sparisjóðnum eða reyndar bara í 2 vikur og svo byrja ég á fullu um mánaðarmótin. 

En ég hef ekkert að segja meira þannig ég læt þetta bara gott heita í bili
blessó
25. apríl 2007 klukkan 17:22
Vala Hrönn Margeirsdóttir
Engin athugasemd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Vala Hrönn Margeirsdóttir
  • Staður: Sauðárkrókur
  • Atvinna: Bankastarfsmaður
  • Annað: msn: valah8@hotmail.com

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan